Lindargata 39, 101 Reykjavík
Fasteignanúmer: 2352840 Merking: 14-08-03 Matssvæði: Miðbær: Frá Tjörn að Snorrabraut
Tegund: Íbúð á hæð Flatarmál: 104.4 m² Herbergi: 3 Svefnherbergi: 2 Baðherbergi: 1
Stilltu síur vélarinnar til að fá betri verðhugmynd
Samkvæmt nýjustu
sambærilegum
kaupsamningum Engir kaupsamningar fundust í leitinniSamkvæmt nýjustu
sambærilegum
eignum á sölu Engar sölur fundust í leitinniFasteignamat Ríkisins
101.250.000 kr
| 969.828 kr./m²
Áætlað Fasteignamat Ríkisins
100.300.000 kr
101250
| 960.728 kr./m²
5 | 6/23/2026 |
Ásett verð:
119.900.000 kr - 1.148.467 kr./m²
LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / [netfang varið] kynna : Um er að ræða glæsilega, bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja 104,4 fm íbúð á 8. hæð með aukinni lofthæð og gólfsíðum gluggum í eftirsóttu lyftuhúsi í Skuggahverfi 2-3 við Lindargötu 39. Sér bílastæði í lokaðri bílgeymslu fygir með eigninni. Mjög snyrtileg sameign og er allt til fyrirmyndar þar. Tvær lyftur eru í húseigninni. ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING. Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands: Íbúð er 95.8 fm merkt 14-08-03 og geymsla er 8.6 fm merkt 14-114, samtals 104.4 fm að stærð. Stæði í bílgeymslu merkt 16B-125 Nánari upplýsingar um eign: Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða [netfang varið] FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR. Eignin skiptist í: Forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, sérgeymslu og stæði í bílgeymslu. Sameiginleg hjóla/vagnageymsla í kjallara. Nánari lýsing á eign: Forstofa með innbyggðum fataskáp. Stofa/borðstofa er opið bjart rými með gólfsíðum gluggum á tvo vegu og er stórglæsilegt útsýni út á sjó og til fjalla úr stofu og af svölum sem að snúa til suð-austurs, arin er í stofurými. Eldhús er með fallegri dökkri eldhúsinnréttingu með efri og neðri skápum og er steinn í borðplötum í eldhúsi og eldunareyja sem skilur af eldhús og stofu, innbyggð uppþvottavél í innréttingu og veglegur ísskápur með frysti, ofn í vinnuhæð og helluborð í eyju með gufugleypi yfir. Hjónaherbergið er rúmgott með fataskápum með rennihurðum á heilum vegg. Auka herbergi er innaf stofu ekki með fataskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, Walk-in sturta og baðkar, falleg innrétting með efri og neðri skápum steinn í borðplötu, upphengt salerni og handklæðaofn. Þvottahús með flísalögðu gólfi og góð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara, steinn á borði með undirlímdum vaski. Nokkrar hillur. Íbúðinni fylgir rúmgóð 8.6 fm sérgeymsla með ca 3 m lofthæð í kjallara hússins. Gólfefni: Parket og flísar á gólfum eignar. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í bílakjallara hússins. Búið er að gera ráð fyrir rafhleðslustöð við bílastæðið. Einnig eru fjölmörg einkastæði fyrir íbúa og gesti á lóð. Sameiginleg hjólageymsla er á 1.hæð Starfandi húsvörður fyrir Skuggahverfi 2-3 . Glæsileg útsýnis íbúð í miðborginni, stutt í alla þjónustu, verslanir, veitingastaði og afþreyingu. Stutt er í stofnbrautir. -Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá. -Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu. -Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða [netfang varið] Skoðunar- og aðgæsluskylda: Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun. Söluyfirlit: Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að greiða: 1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal. 3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda. 3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk. 3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á. Heimasíða LANDMARK Pantaðu frítt söluverðmat































