Birkilundur 17a, 341 Stykkishólmur
Fasteignanúmer: 2335878 Merking: 01 Matssvæði: Snæfellsnes: Norður
Tegund: Sumarbústaðaland Flatarmál: 0 m² Herbergi: 0 Svefnherbergi: 0 Baðherbergi: 0
Stilltu síur vélarinnar til að fá betri verðhugmynd
Samkvæmt nýjustu
sambærilegum
kaupsamningum Engir kaupsamningar fundust í leitinniSamkvæmt nýjustu
sambærilegum
eignum á sölu Engar sölur fundust í leitinniFasteignamat Ríkisins
Á ekki við
4 | 9/8/2026 |
Ásett verð:
9.900.000 kr -
Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu sumarhúsalóðin BIRKILUNDUR 17A, 341 Stykkishólmi. Um er að ræða 4523 fm. eignarlóð sem er skipulögð sem sumarhúsalóð . Á lóðinni hefur þegar verið hafin uppbygging sumarhúss, en framkvæmdum er ólokið. Húsið er komið á undirstöður og ytra byrði að hluta til komið upp, en eftir er að ljúka frekari byggingarframkvæmdum bæði að utan og innan. Kaupendur taka við eigninni í núverandi ástandi og þurfa að gera ráð fyrir áframhaldandi framkvæmdum og frágangi í samræmi við gildandi skipulag og byggingarreglugerðir. Smelltu hér til að sækja söluyfirlit Nánari lýsing: Sumarhúsalóð : Stærð 4523 fm, spildu úr landi Saura í Sveitarfélaginu Stykkishólmi. Landnúmer: L196695 Sumarhús : Uppbygging hófst árið 2025, en framkvæmdum er ólokið. Samkvæmt skipulagsskilmálum er heimilt að byggja eitt frístundahús og tvö aukahús á lóðinni. Heildarbyggingarmagn er að hámarki 120 fm. og skal byggingarefni vera timbur að eins miklu leyti og kostur er. Aukahús mega m.a. þjóna sem geymsla, svefnhýsi, listasmiðja, gufubað, gestahús og/eða garðhús. Sameiginleg stærð aukahúsa teljast með í byggingarmagni lóðar. Birkilundur í Sauraskógi er fallegt og friðsælt hverfi þar sem saman fer blönduð byggð sumarhúsa og íbúðarhúsa. Umhverfið einkennist af grónu kjarri og skjólgóðu landslagi sem skapar notalega og afslappandi stemningu. Á svæðinu er að finna fjölbreyttar og skemmtilegar gönguleiðir sem bjóða upp á útivist við allra hæfi. Stykkishólmur er í um 12 mínútna akstursfjarlægð, þar sem finna má alla helstu þjónustu, svo sem sundlaug, verslanir, golfvöll og veitingahús. Allar frekari upplýsingar veita: Anton Y. Sakornram , aðstoðarmaður fasteignasala, s. 779-5463 / [netfang varið] Kristján Baldursson , löggiltur fasteignasali, s. 867-3040 / [netfang varið] Bóka verðmat www.trausti.is Trausti á Facebook Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.













