Tröllahraun 8, 805 Selfoss

Fasteignanúmer: 2319453 Merking: 01-01-01 Matssvæði: Árnessvæði
Tegund: Sumarbústaður Flatarmál: 227.7 m² Herbergi: 4 Svefnherbergi: 3 Baðherbergi: 3 Byggingarár:
Ásett verð eignar: 190.000.000 kr - 834.431 kr./m²
Stilltu síur vélarinnar til að fá betri verðhugmynd
Samkvæmt nýjustu kaupsamningum Engir kaupsamningar fundust í leitinni
Samkvæmt nýjustu eignum á sölu Engar sölur fundust í leitinni

Fasteignamat Ríkisins
157.400.000 kr
|
691.260 kr./m²
Áætlað Fasteignamat Ríkisins
175.800.000 kr 157400
|
772.069 kr./m²

Dagsetning Kaupsamnings

2011-11-11

Kaupverð

30.000.000 kr.

Fermetraverð

176.471 kr./m²

Raun-Kaupverð

51.591.300 kr.

Raun-Fermetraverð

303.478 kr./m²


3 | 8/27/2026 |
Ásett verð: 190.000.000 kr - 834.431 kr./m²
Tröllahraun 8 – mynd 1
Tröllahraun 8 – mynd 2
Tröllahraun 8 – mynd 3
Tröllahraun 8 – mynd 4
Tröllahraun 8 – mynd 5
Tröllahraun 8 – mynd 6
Tröllahraun 8 – mynd 7
Tröllahraun 8 – mynd 8
Tröllahraun 8 – mynd 9
Tröllahraun 8 – mynd 10
Tröllahraun 8 – mynd 11
Tröllahraun 8 – mynd 12
Tröllahraun 8 – mynd 13
Tröllahraun 8 – mynd 14
Tröllahraun 8 – mynd 15
Tröllahraun 8 – mynd 16
Tröllahraun 8 – mynd 17
Tröllahraun 8 – mynd 18
Tröllahraun 8 – mynd 19
Tröllahraun 8 – mynd 20
Tröllahraun 8 – mynd 21
Tröllahraun 8 – mynd 22
Tröllahraun 8 – mynd 23
Tröllahraun 8 – mynd 24
Tröllahraun 8 – mynd 25
Tröllahraun 8 – mynd 26
Tröllahraun 8 – mynd 27
Tröllahraun 8 – mynd 28
Tröllahraun 8 – mynd 29
Tröllahraun 8 – mynd 30
Tröllahraun 8 – mynd 31
Tröllahraun 8 – mynd 32
Tröllahraun 8 – mynd 33
Tröllahraun 8 – mynd 34
Tröllahraun 8 – mynd 35
Tröllahraun 8 – mynd 36
Tröllahraun 8 – mynd 37
Pálsson Fasteignasala  kynnir: Tröllahraun 8, Grímsnesi. Glæsilegt heilsárshús á einni hæð í fallegu og grónu umhverfi í landi Miðengis í Grímsnesi. Húsið er skráð 228 fm og stendur á um einnar hektara eignarlóð. Eignin var byggð árið 2012, er steypt, með gólfhita og býður upp á rúmgóð alrými, þrjú svefnherbergi , tvö baðherbergi, bílskúr, stóran pall og heitan pott. Húsið stendur á endalóð í lokuðu hverfi með aðgangsstýringu og nýtur óskertrar náttúrusýnar úr stórum gólfsíðum gluggum. Skráð stærð 228,0 fm. Helstu atriði Glæsilegt heilsárshús, byggt árið 2012. Skráð 228,0 fm með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Um einnar hektara eignarlóð í lokuðu hverfi með aðgangsstýringu. Stórt alrými með gólfsíðum gluggum, góðri lofthæð og miklu útsýni. Bílskúr, gólfhiti, stór viðarpallur og heitur pottur. Nánari lýsing Við Tröllahraun 8 er að finna vandað og rúmgott heilsárshús á einstaklega fallegum stað í Grímsnesi . Húsið stendur á endalóð í grónu og friðsælu hverfi með læstu hliði. Umhverfið er fallegt og útsýni frá húsinu mikið, en stórir gólfsíðir gluggar í stofu og alrými tengja húsið vel við náttúruna í kring. Komið er inn í rúmgott anddyri með flísum á gólfi og góðum fataskápum. Anddyrið tengir saman alrými hússins og svefnálmu. Alrýmið er stórt og bjart, með rúmgóðri stofu, borðstofu og eldhúsi í opnu rými. Þar nýtur lofthæðin sín vel og stórir gluggar gefa rýminu góða birtu og fallega tengingu við verönd og umhverfi. Eldhúsið er stórt og vel skipulagt, með góðu skápaplássi, vönduðum tækjum og eldunareyju. Í eldhúsi eru m.a. nýleg tæki; AEG spanhelluborð, AEG bakaraofn með sjálfhreinsibúnaði, ný uppþvottavél frá Siemens og nýr tvöfaldur Samsung ísskápur. Eldhúsið tengist stofu og borðstofu á eðlilegan hátt og myndar gott miðrými hússins. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi. Hjónasvíta er í öðrum enda hússins og er með sérbaðherbergi með sturtu. Tvö önnur svefnherbergi eru rúmgóð og henta vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnuherbergi. Aðalbaðherbergi er flísalagt, með walk-in sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Hreinlætistæki á baðherbergjum eru vönduð og voru keypt í Portúgal. Bílskúr er um 40 fm að stærð, með flísalögðu gólfi og rafstýrðum hurðaopnara. Aftan við bílskúr er einnig um 8 fm kofi sem er ekki inni í skráðri fermetratölu hússins og nýtist vel fyrir útihúsgögn og annan búnað. Góð aðkoma er að húsinu og löng heimreið með nægum bílastæðum. Útiaðstaðan  er einn af helstu kostum eignarinnar. Stór pallur liggur með húsinu og er hann úr plastefni sem er viðhaldslétt. Á pallinum er heitur pottur og þaðan nýtur óskertrar náttúrusýnar yfir gróið umhverfi og fallegt landslag. Húsið er klætt með ítölskum flísum og gluggar og hurðir eru úr mahóní. Allt tréverk innanhúss er sérsmíðað af Fagus með skógarfuruáferð. Húsið er með heitu og köldu vatni, rafmagni og gólfhita. Hitaveita hefur reynst vel og rekstrarkostnaður hefur verið hóflegur. Eignin er að mörgu leyti hönnuð með varanleika og lágmarksviðhaldi í huga. Hér er um að ræða vandað og vel staðsett heilsárshús þar sem stærð, skipulag, útsýni, lóð og útiaðstaða mynda sterka heild. Eignin hentar vel þeim sem leita að glæsilegu frístundaheimili eða heilsárshúsi í fallegu og friðsælu umhverfi, með góðu aðgengi að helstu þjónustu í uppsveitum Árnessýslu og á Selfossi. Nánari upplýsingar veita: Ómar Hjaltason astmf. S:778-9090 eða [netfang varið] Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða [netfang varið] www.eignavakt.is www.verdmat.is  Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga). 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.