Lækjarbrún 27, 810 Hveragerði
Fasteignanúmer: 2302594 Merking: 01-01-01 Matssvæði: Ölfus og Árborg
Tegund: Raðhús Flatarmál: 128.9 m² Herbergi: 3 Svefnherbergi: 2 Baðherbergi: 1 Byggingarár: 2008
Stilltu síur vélarinnar til að fá betri verðhugmynd
Samkvæmt nýjustu
sambærilegum
kaupsamningum Engir kaupsamningar fundust í leitinniSamkvæmt nýjustu
sambærilegum
eignum á sölu Engar sölur fundust í leitinniFasteignamat Ríkisins
81.750.000 kr
| 634.213 kr./m²
Áætlað Fasteignamat Ríkisins
81.350.000 kr
45900
| 631.109 kr./m²
Dagsetning Kaupsamnings
2021-12-16
Kaupverð
63.500.000 kr.
Fermetraverð
492.630 kr./m²
Raun-Kaupverð
81.503.800 kr.
Raun-Fermetraverð
632.303 kr./m²
Dagsetning Kaupsamnings
2017-06-16
Kaupverð
38.000.000 kr.
Fermetraverð
379.242 kr./m²
Raun-Kaupverð
56.734.100 kr.
Raun-Fermetraverð
566.209 kr./m²
Dagsetning Kaupsamnings
2010-11-17
Kaupverð
26.000.000 kr.
Fermetraverð
259.481 kr./m²
Raun-Kaupverð
47.049.000 kr.
Raun-Fermetraverð
469.551 kr./m²
12 | 11/2/2021 |
Ásett verð:
64.900.000 kr - 503.491 kr./m²
Byr fasteignasala kynnir í einkasölu LÆKJARBRÚN 27, Hveragerði. Þriggja herbergja endaraðhús á einni hæð fremst í botnlanga, ásamt bílskúr, með hellulagðri verönd beggja megin við húsið. Um er að ræða timbur endaraðhús byggt árið 2008, 100,2 m² og bílskúr byggður árið 2016, 28,7m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, gangur, þvottahús, geymsla og bílskúr. HÚSIÐ ER LAUST TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING. Nánari lýsing: Anddyri með þreföldum fataskáp. Gangur liggur að öðrum vistarverum hússins. Borðstofa/eldhús eru í sama rými. Frá eldhúsi/borðstofu er útgengt út á hellulagða verönd fyrir framan hús. Í eldhúsi er innrétting ásamt lítilli eyju, gert er ráð fyrir uppþvottavél. AEG ofn í vinnuhæð og vifta. Nýtt ítalskt spanhelluborð og nýr vaskur. Stofa er rúmgóð með uppteknu lofti og útgengi í bakgarð. Bakgarður snýr í vestur. Hellulögð verönd með skjólveggjum. Svefnherbergin eru tvö , hjónaherbergið er með fataskápa yfir heilan vegg, lítil vegghengd eining fylgir. Tvöfaldur fataskápur í minna svefnherberginu. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni, sturta og vaskinnrétting, gluggi. Þvottahús með upphækkun fyrir þvottavél og þurrkara og gluggi, vaskur. Geymsla er inn af þvotthúsi. Gólfhiti er í eigninni. Gólfefni , flæðandi parket er á stofu, eldhúsi/borðstofu, gangi og svefnherbergum. Flísar eru á baðherbergi, forstofu, þvottahúsi, geymslu og bílskúr. Lóð að framanverðu er hellulögð, skjóltjald er framan við hús, veggfest samanfellanleg snúra. Sorptunnuskýli fyrir fjórar tunnur er framan við húsið . Lóð að aftanverðu er með hellulagðri verönd og skjólveggjum. Bílskúrinn stendur í bílskúrslengju 28,7 m² byggður árið 2016. Bílskúrshurð með rafmagnsopnara (2 fjarstýringar), inngönguhurð á hlið bílskúrs. Gólf er flísalagt, heitt og kalt vatn, rafmagn, gluggi, stálvaskur í borði. Raðhúsið er klætt að hluta með litaðri álklæðningu og að hluta viðarklætt. Við anddyri er klætt með viðarklæðningu. Húsið er því viðhaldslítið. Snjóbræðslulögn er að hluta undir hellulögðum gangstíg/þjónustustíg. Eigninni fylgir bílastæði framan við bílskúr, tvö gestastæði eru á bílastæðum. Hús og umhverfi er hannað með tilliti til aðgengis hreyfihamlaðra. Í íbúðinni er öryggishnappar í hverju herbergi og Securitas vaktar svæðið sbr. þjónustusamning við HNLFÍ, einnig er brunavarnarkerfi tengt inn á Heilsustofnun. Eitt er sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða. Eign á vinsælum stað í Hveragerði. Húsið stendur innst við botnlanga á friðsælum stað, falleg náttúru allt um kring, stutt í gönguleiðir og alla þjónustu. Skilyrði er að kaupendur gerist aðilar að þjónustusamning við Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands (HNLFÍ). Kaupendur greiða mánaðarlega grunngjald fyrir tiltekna þjónustu, sjá nánar þjónustusamninginn. Mikið er lagt upp úr að hús og lóð sé með þeim hætti að íbúum líði vel í nálægð við náttúru og heilsurækt, þar sem möguleiki er að fá margvíslega þjónustu, sbr. þjónustusamning við HNLFÍ . Ýtið hér fyrir staðsetningu. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - [netfang varið] Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – [email protected] Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali, - stílisti - [email protected] Irpa Fönn Hlynsdóttir, hefur lokið námi til löggildingar, - skrifstofa. Um skoðunarskyldu: Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk. 5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á. www.byrfasteign.is | Austurmörk 4, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala


























