Hraunbær 20, 810 Hveragerði
Fasteignanúmer: 2282138 Merking: 02-01-01 Matssvæði: Ölfus og Árborg
Tegund: Íbúð á hæð Flatarmál: 163.9 m² Herbergi: 4 Svefnherbergi: 3 Baðherbergi: 1 Byggingarár: 2005
Stilltu síur vélarinnar til að fá betri verðhugmynd
Samkvæmt nýjustu
sambærilegum
kaupsamningum Engir kaupsamningar fundust í leitinniSamkvæmt nýjustu
sambærilegum
eignum á sölu Engar sölur fundust í leitinniFasteignamat Ríkisins
92.200.000 kr
| 562.538 kr./m²
Áætlað Fasteignamat Ríkisins
91.150.000 kr
75300
| 556.132 kr./m²
Dagsetning Kaupsamnings
2023-04-26
Kaupverð
76.400.000 kr.
Fermetraverð
466.138 kr./m²
Raun-Kaupverð
85.893.200 kr.
Raun-Fermetraverð
524.059 kr./m²
Dagsetning Kaupsamnings
2014-10-05
Kaupverð
34.900.000 kr.
Fermetraverð
212.935 kr./m²
Raun-Kaupverð
54.543.600 kr.
Raun-Fermetraverð
332.786 kr./m²
1 | 1/31/2023 |
Ásett verð:
76.900.000 kr - 469.189 kr./m²
BYR fasteignasala kynnir HRAUNBÆR 20, Hveragerði í einkasölu. Vel skipulagt fjögurra herbergja parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr, innst í botnlanga í grónu hverfi miðsvæðis í Hveragerði. Heitur pottur er í yfirbyggðri garðkúlu,í framgarði til suðurs. Stutt er í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Ýtið hér fyrir staðsetningu. Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, hjónaherbergi með fataherbergi inn af, tvö barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla og innbyggður bílskúr. Skráning eignarinnar hjá Þjóðskrá Íslands: Stærð: Íbúð 122,8 m², bílgeymsla 31,9 m² og geymsla 9,2 m² samtals 163,9 m² Brunabótamat: 81.050.000kr. Fasteignamat: 75.300.000 kr. Byggingarár: 2005 Byggingarefni: Timbur Nánar um eignina: Anddyri með fataskáp. Stofa, eldhús og borðstofa eru saman í opnu alrými, upptekið loft er í alrými. Útgengt er frá borðstofu út á timburverönd. Eldhús með rúmgóðri eyju. Whirlpool ofn í vinnuhæð, gashelluborð, gasskynjari er við innréttingu og við gaskút. Svefnherbergin eru þrjú. Hjónaherbergi með fataherbergi inn af. Tvö barnaherbergi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vask innrétting, vegghengt salerni og sturtuklefi. Geymsla með flísum á gólfi, stálvaskur. Innangengt er í bílskúr geymslu. Bílskúr, rafmagnshurðaopnari er á hurð. Inntak hita og rafmagns er í bílskúr. Þvottahús/geymsla er inn af bílskúr. Innrétting með plássi fyrir eina vél, stálvaskur í borði, útgengt er í bakgarð. Gólfhiti er í allri eigninni, hitastýringar á veggjum. Gólfefni : Parket er á alrými, gangi og svefnherbergjum. Flísar á eldhúsi og geymslu. Epoxy á bílskúr og þvottahúsi. Húsið er timbur parhús á einni hæð . Járn á þaki. Hellulagt er í aðkomu og bílaplani fyrir framan húsið. Timburverönd til suðurs og vesturs með skjólveggjum, afgirt er við húsið, þar er garðkúla u.þ.b. 5 metrar í þvermál utan um heitan pott (rafmagns). Hellulagður gangstígur er í kringum húsið. Snyrtilegur afgirtur vel við haldinn garður. Að utan var borið á húsið- málað fyrir 2-3 árum. Lítill geymsluskúr er við svalahurð út í garð. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - [netfang varið] Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – [email protected] Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - [email protected] Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala - [email protected] Um skoðunarskyldu: Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk. 5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á. www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala





















