Lyngberg 13B, 221 Hafnarfjörður

Fasteignanúmer: 2077457 Merking: 02-01-01 Matssvæði: Hafnarfjörður: Setberg
Tegund: Parhús Flatarmál: 170.1 m² Herbergi: 5 Svefnherbergi: 3 Baðherbergi: 1 Byggingarár: 1988
Ásett verð eignar: Eign ekki til sölu
Stilltu síur vélarinnar til að fá betri verðhugmynd
Samkvæmt nýjustu kaupsamningum Engir kaupsamningar fundust í leitinni
Samkvæmt nýjustu eignum á sölu Engar sölur fundust í leitinni

Fasteignamat Ríkisins
124.900.000 kr
|
734.274 kr./m²
Áætlað Fasteignamat Ríkisins
124.550.000 kr 55250
|
732.216 kr./m²

Dagsetning Kaupsamnings

2018-10-03

Kaupverð

68.900.000 kr.

Fermetraverð

405.056 kr./m²

Raun-Kaupverð

99.195.600 kr.

Raun-Fermetraverð

583.160 kr./m²


1 | 7/30/2018 |
Ásett verð: 67.900.000 kr - 399.177 kr./m²
Lyngberg 13B – mynd 1
Lyngberg 13B – mynd 2
Lyngberg 13B – mynd 3
Lyngberg 13B – mynd 4
Lyngberg 13B – mynd 5
Lyngberg 13B – mynd 6
Lyngberg 13B – mynd 7
Lyngberg 13B – mynd 8
Lyngberg 13B – mynd 9
Lyngberg 13B – mynd 10
Lyngberg 13B – mynd 11
Lyngberg 13B – mynd 12
Lyngberg 13B – mynd 13
Lyngberg 13B – mynd 14
Lyngberg 13B – mynd 15
Lyngberg 13B – mynd 16
Lyngberg 13B – mynd 17
Lyngberg 13B – mynd 18
Lyngberg 13B – mynd 19
Lyngberg 13B – mynd 20
Lyngberg 13B – mynd 21
Lyngberg 13B – mynd 22
Lyngberg 13B – mynd 23
** EIGNIN ER SELD. OPNU HÚSI ER AFLÝST ** Remax Fjörður kynnir í einkasölu fallegt og vel skipulagt 4-5 herbergja 170,1 fm parhús á einni hæð að Lyngbergi 13B í Hafnarfirði. Íbúðarhlutinn er 141,8 fm og bílskúr 28,3 fm. Verið er að innrétta litla íbúð í bílskúrnum sem hentar vel til útleigu. Garður er gróinn og fallegur og rennur lítill lækur meðfram honum. Úr stofu er útgengt á skjólsælan og sólríkan suðursólpall. Húsið er hraunað að utan og málað. Hellulagt bílastæði er upphitað og gangstígur að útihurð upphitaður. Hellulagt er meðfram húsinu að framanverðu. Mjög góð staðsetning þ.s stutt er golfvöllinn í Setbergi, á íþróttasvæði FH í Kaplakrika og eru göngustígur og undirgöng sem liggja þangað. Stutt er út stofnbraut og í fjölbreytta verslun og þjónustu í næsta nágrenni. Grunnskóli og leikskóli eru í góðu göngufæri. Forstofa er með flísum á gólfi og skáp. Gangur er með flísum á gólfi og góðum skáp. Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er á sólríkan suðursólpall og út í garð. Sjónvarpshol er með parketi á gólfi. Var áður herbergi og mögulegt að breyta aftur í herbergi.. Eldhús er rúmgott með flísum á gólfi, viðarinnréttingu og borðkrók. Span helluborð. Vifta er ónýt. marmaraflísar eru á milli efri og neðri skápa. Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum skáp. Svefnherbergi er með parketi á gólfi og skáp. Svefnherbergi á gangi er með parketi á gólfi. Skápur er frammi á gangi. Baðherbergi er rúmgott með flísum á veggjum og gólfi, sturta, upph.wc, viðarinnrétting og gluggi. Var endurnýjað árið 2010 Þvottahús er með ljósri innréttingu með vinnuborði og vaski. Tæki eru í vinnuhæð. Flísar á gólfi. Yfir þvottahúsi er háaloft. Bílskúr/aukaíbúð er 28,3 fm og er verið að innrétta íbúð með svefnlofti. Flísar á gólfi. Baðherbergi með sturtu og upph.wc. Stofa og eldhús í opnu rými. Stórt svefnloft með skáp. Búið er að endurnýja flesta ofna í húsinu fyrir utan 3 ofna á gangi, í forstofu og hjónaherbergi. Nýlegur töfluskápur fyrir rafmagnstöflu. Komin er tími á að mála járn á þaki og þakkant. Vel staðsett og áhugaverð eign á skjólsælum og fallegum stað í Setberginu. Allar nánari upplýsingar veitir Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6076 eða sendið tölvupóst á netfangið [netfang varið] Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Remax Fjörður fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Vegna góðrar sölu undanfarið get ég bætt við mig eignum til sölu og til leigu. Frítt söluverðmat án skuldbindinga. Hringdu núna í síma 896-6076 og bókaðu tíma. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs. 3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali. 4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 5. Umsýslugjald til fasteignasölu 59.900 Fletta í fasteignalista