Mynd vantar Aðal mynd
Mynd vantar Auka mynd

Álfaskeið 86, 220 Hafnarfjörður

Fasteignanúmer: 2072993 Merking: 01-01-01 Matssvæði: Hafnarfjörður
Tegund: Íbúð á hæð Flatarmál: 126.5 m² Herbergi: 4 Svefnherbergi: 3 Baðherbergi: 1 Byggingarár: 1965
Ásett verð eignar: Eign ekki til sölu
Stilltu síur vélarinnar til að fá betri verðhugmynd
Samkvæmt nýjustu kaupsamningum Engir kaupsamningar fundust í leitinni
Samkvæmt nýjustu eignum á sölu Engar sölur fundust í leitinni

Fasteignamat Ríkisins
72.000.000 kr
|
569.170 kr./m²
Áætlað Fasteignamat Ríkisins
75.200.000 kr 64600
|
594.466 kr./m²

Dagsetning Kaupsamnings

2019-08-30

Kaupverð

41.750.000 kr.

Fermetraverð

330.040 kr./m²

Raun-Kaupverð

58.739.500 kr.

Raun-Fermetraverð

464.344 kr./m²


31 | 6/19/2024 |
Ásett verð: 69.900.000 kr - 552.569 kr./m²
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Thumbnail
Fasteignasalan Garður Fasteignasalan Garður og Einar Örn lgf. kynna til sölu 4 herbergja endaíbúð á 2. hæð við Álfaskeið 86. Eignin er skráð 126,7 fm. Þar af er íbúðin 94,1 fm, bílskúrinn 26,3 fm og geymslan 6,3 fm. Góðar hornsvalir til suðurs, stór og gróinn garður. Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla í kjallara. Húsið er að mestu klætt að utan, búið að setja dúk á þak bílskúrs. Búið er að skipta um glugga á gaflhlið hússins. Eignin skiptist í: Forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, svalir, sameiginlegt þvottahús, geymslu og frístandandi bílskúr. Samkvæmt yfirlýsingu húsfélags eru engar framkvæmdir samþykktar og staða hússjóðs mjög góð. Nánari lýsing: Forstofa með harðparketi á gólfi og skáp með innfelldri lýsingu. Gangur er með harðparketi á gólfi. Stofan er stór og björt með útgengt á góðar og sólríkar suðursvalir með fallegu útsýni. Eldhús er rúmgott með L-laga innréttingu og eyju. Falleg hvít innrétting með bakarofni í vinnuhæð með góðu vinnuplássi. Helluborð á eyju ásamt innbyggðum vínkæli. Hjónaherbergi er rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskápum með innfelldri lýsingu. Svefnherbergi í forstofu er með harðparketi á gólfi. Herbergið var stækkað á kostnað geymslu innan íbúðar. Svefnherbergi er með harðparketi á gólfi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Upphengt klósett ásamt baðkari með sturtu, handlaug og veggskápum. Geymsla í kjallara er 6,3 fm. Þvottahús er sameiginlegt á hæðinni. Hjóla- og vagnageymsla er í kjallara. Bílskúr er 26,3 fm og er breiðari en sambærilegir bílskúrar í götunni. Upphitaður með köldu vatni. Bílskúrshurð er með inngönguhurð og hurðaropnari er í skúr. Annað: Mjög góð og fjölskylduvæn staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu ss. matvöruverslanir, íþróttasvæði, leik- og grunnskóla. Fjölbreytt verslun í nágrenni og stutt út á stofnbraut. Nánari upplýsingar veitir: Einar Örn Ágústsson - löggiltur fasteignasali [netfang varið] / sími 888-7979 Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati. 2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum. 3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar. 5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði. www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður