Fífumýri 5, 210 Garðabær
Fasteignanúmer: 2070025 Merking: 01-01-01 Matssvæði: Garðabær
Tegund: Íbúð á hæð Flatarmál: 298 m² Herbergi: 8 Svefnherbergi: 5 Baðherbergi: 3 Byggingarár: 1984
Stilltu síur vélarinnar til að fá betri verðhugmynd
Samkvæmt nýjustu
sambærilegum
kaupsamningum Engir kaupsamningar fundust í leitinniSamkvæmt nýjustu
sambærilegum
eignum á sölu Engar sölur fundust í leitinniFasteignamat Ríkisins
179.600.000 kr
| 602.685 kr./m²
Áætlað Fasteignamat Ríkisins
185.500.000 kr
96200
| 622.483 kr./m²
Dagsetning Kaupsamnings
2021-05-25
Kaupverð
144.000.000 kr.
Fermetraverð
483.221 kr./m²
Raun-Kaupverð
189.951.300 kr.
Raun-Fermetraverð
637.420 kr./m²
1 | 4/23/2021 |
Ásett verð:
150.000.000 kr - 503.356 kr./m²
Eignamiðlun kynnir: Bókið skoðun. Einstaklega fallegt 298 fm einbýlishús með innbyggðum bílskúr og stúdíóíbúð á jarðhæð. Eignin sem er á þremur hæðum er vel staðsett innarlega í botnlanga við Fífumýri í Garðabæ. Húsið er í góðu ástandi og hefur verið vel við haldið frá byggingu en sami eigandi hefur átt húsið frá upphafi. Suðurlóð er með timburverönd og fallegum gróðri. Hellulagt bílaplan með hita er fyrir framan húsið og hellulagður göngustígur upp með húsinu að suðurhluta lóðarinnar. Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur [netfang varið] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090 Samkvæmt skráningu er húsið 298 fm. Á jarðhæð er bílskúr skráður 28,8 fm og íbúðarherbergi skráð 46,7 fm. Aðalhæð er skráð 125,1 fm og rishæð er skráð 97,4 fm. Aðalhæð skiptist í forstofu, hol, óinnréttaða gestasnyrtingu, sem í dag er notuð sem geymsla, dagstofu, borðstofu, arinstofu, eldhús og búr. Efri hæðin skiptist í stórt hol 4 svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi. Á jarðhæð er forstofa, bílskúr og stúdíóíbúð. Þá hefur óskráðu rými verið breytt í spa með heitum potti og baðherbergi. Komið er inn í forstofu með fataskápum og marmaraflísum á gólfi. Hurðin á milli holsins og forstofunnar er með skáskornu gleri. Hol, stofur og eldhús með fallegu gegnheilu parketi (fiskibeinsmunstur). Marmari er í öllum sólbekkjum á aðlhæð og efri hæð nema í búri og þvottahúsi. Vængjahurð með skáskornu gleri skilur að stofu og hol. Stofan er björt og er gengið þaðan út í garð til suðurs. Á milli stofu og borðstofu er gengið í horni niður í arinstofu sem er flísalögð með marmara. Þar sem marmari er í húsinu er hann alls staðar eins, þ.e. bottechino marmari (beige). Arininn sjálfur er hins vegar hannaður með marmara flekum og tilsniðnum steinum úr rauðlituðum marmara (Rojo Alicante), hringinn í kringum bogann í arninum og aðeins út á gólfið. Gestasnyrting er frá holi, en óinnréttuð og notuð sem geymsla. Eldhúsið er komið á tíma en hurð sem skilur að eldhús og borðstofu er rennihurð með skáskornu gleri. Inn af eldhúsi er kalt búr með skolvaski. Inni í húsinu eru tveir hringstigar, annar niður í kjallara og hinn upp á efri hæð hússins. Báðir úr steini en handriðin eru eins á báðum, þau eru handsmíðuð með hvítlökkuðum pílárum. Sama munstrið er á öllum gereftum í húsinu þ.e. í kringum glugga og hurðir. Annað munstur er á gólflistum á miðhæð og efrihæð. - Gengið er upp bjartan hringstiga frá holi upp á stórt parketlagt sjónvarpshol efri hæðar. Svefnherbergin á hæðinni eru fjögur og eru parketlögð. Frá hjónaherbergi og sjónvarpsholi er gengið út á svalir. Rúmgott baðherbergi er á hæðinni með marmara á gólfi og borðplötu, veggirnir eru flísalagðir upp í loft með venjulegum flísum og góðum innréttingum, sturtuklefa og baðkari. Við hlið hjónaherbergis er herbergi sem nýtt hefur verið sem skrifstofa. Þessi tvö herbergi eru inni á sérgangi en gengið er inn í hin tvö svefnherbergin frá holinu. - Sér inngangur er einnig á jarðhæð. Þar eru öll gólfin flísalögð með fallegum flísum sem harmonera vel við marmarann á hinum hæðunum. Útbúin hefur verið falleg stúdíóíbúð á hæðinni. Sólbekkir og borðplötur eru úr granít (beige). Innréttingar hvítlakkaðar með bílasprautulakki. Flísalagt baðherbergi upp í loft. Inn af ganginum við hlið hringstigans er spa, flísalagt í hólf og gólf með heitum potti og sturtu. Það var mikið lagt í flísalögnina sem er eins í báðum rýmunum í kjallaranum. Sér loftræstikerfi er fyrir votrýmið sem skilst með glerrennihurð frá ganginum. Góð geymsla er inn af ganginum í kjallaranum. Innangengt er í bílskúrinn frá ganginum og inn af bílskúrnum er góð geymsla. Fallegt og vel staðsett hús í Garðabæ, þar sem stutt er í skóla og helstu þjónustu. Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum Heimasíða Eignamiðlunar Eignamiðlun á Facebook























































