Hrauntunga 43, 200 Kópavogur
Fasteignanúmer: 2062750 Merking: 01-01-01 Matssvæði: Kópavogur: Austurbær
Tegund: Íbúð á hæð Flatarmál: 288.4 m² Herbergi: 7 Svefnherbergi: 4 Baðherbergi: 2 Byggingarár: 1970
Stilltu síur vélarinnar til að fá betri verðhugmynd
Samkvæmt nýjustu
sambærilegum
kaupsamningum Engir kaupsamningar fundust í leitinniSamkvæmt nýjustu
sambærilegum
eignum á sölu Engar sölur fundust í leitinniFasteignamat Ríkisins
160.750.000 kr
| 557.386 kr./m²
Áætlað Fasteignamat Ríkisins
167.000.000 kr
87800
| 579.057 kr./m²
Dagsetning Kaupsamnings
2021-10-12
Kaupverð
140.000.000 kr.
Fermetraverð
485.437 kr./m²
Raun-Kaupverð
181.134.600 kr.
Raun-Fermetraverð
628.067 kr./m²
2 | 8/10/2021 |
Ásett verð:
145.000.000 kr - 502.774 kr./m²
STAKFELL S. 535-1000 KYNNIR: Hrauntunga 43, glæsilegt endaraðhús á frábærum stað í suðurhlíðum Kópavogs. Húsið er teiknað að Sigvalda Thordarsyni. Húsið er á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr og lítilli aukaíbúð. Á neðri hæð er bílskúr, lítil íbúð með sér inngangi, anddyri, tvö rúmgóð svefnherbergi, gestasalerni og þvottahús. Á efri hæð er eldhús, mjög rúmgott hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi og rúmgóð stofa með útgengi á u.þ.b. 50 fm. suður með fallegu útsýni. Allar nánari upplýsingar gefur Þorlákur Ómar EInarsson lögg.fasteignasali í síma 820-2399 eða netfang [netfang varið] Nánari lýsing: Við inngang neðri hæðar er rúmgóð forstofa með flísum á gólfi. Þaðan er gengið inn í gestasalerni, þvottahús og tvö rúmgóð svefnherbergi. Stigi upp á efri hæð er parektlagður. Á efri hæð er er stór parketlögð stofa með útgengi á u.þ.b. 50 fermetra suður svalir með glæsilegu útsýni. Rúmgott eldhús með fallegri innréttingu. Á gangi er barnaherbergi. Rúmgott fallegt baðherbergi flísalagt með bæði sturtu og baðkari, góð innrétting. Mjög stórt hjónaherbergi með fataherbergi og útgengi út á svalir. Auðvelt er að gera annað barnaherbergi á hæðinni. Á jarðhæð er lítil íbúð með góðum leigutekjum og sér inngangi og innbyggður bílskúr. Auðvelt er að sameina íbúðirnar. Stór og gróin lóð. Endurbætur og viðhald: Árið 2019 var húsið málað. Sama ár var þakið endurnýjað og skipt var um jarðveg á lóð. Árið 2018 voru allir gluggar og gler í húsinu endurnýjuð og rennihurðar settar á svalir. Árið 2017 var aukaíbúðin öll endurnýjuð. Árið 2013 var nýtt grindverk sett á svalirnar. Árið 2012 var svalagólf flotað og húsið múrað að utan. Árið 2004 var slegið upp nýjum léttum veggjum í húsinu. Eignin er vel staðsett í þessu vinsæla hverfi í suðurhlíðum Kópavogs. Stutt er í grunn- og leikskóla og útivistarsvæði. Allar nánari upplýsingar gefur Þorlákur Ómar EInarsson lögg.fasteignasali í síma 820-2399 eða netfang [email protected] Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.000 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STAKFELL fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.






















