Kambasel 40, 109 Reykjavík
Fasteignanúmer: 2057129 Merking: 02-01-01 Matssvæði: Seljahverfi
Tegund: Íbúð á hæð Flatarmál: 226.2 m² Herbergi: 7 Svefnherbergi: 5 Baðherbergi: 2 Byggingarár: 1982
Stilltu síur vélarinnar til að fá betri verðhugmynd
Samkvæmt nýjustu
sambærilegum
kaupsamningum Engir kaupsamningar fundust í leitinniSamkvæmt nýjustu
sambærilegum
eignum á sölu Engar sölur fundust í leitinniFasteignamat Ríkisins
123.800.000 kr
| 547.303 kr./m²
Áætlað Fasteignamat Ríkisins
122.350.000 kr
65400
| 540.893 kr./m²
Dagsetning Kaupsamnings
2019-09-06
Kaupverð
73.200.000 kr.
Fermetraverð
323.607 kr./m²
Raun-Kaupverð
102.900.100 kr.
Raun-Fermetraverð
454.908 kr./m²
1 | 7/13/2019 |
Ásett verð:
74.900.000 kr - 331.123 kr./m²
***Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun - mikill áhugi var fyrir eigninni, ef þú ert með svipaða eign er ég með fólk sem er að leita*** Lind fasteignasala og Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali kynna fallegt raðhús á tveimur hæðum með risi á frábærum stað við Kambasel 40 í Seljahverfinu. Húsið skiptist í anddyri, fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, sjónvarpsstofu, þvottahús, geymslu og bílskúr. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 226,7fm, þar af er íbúðarhlutinn 201,5fm og bílskúrinn 24,7fm. Nánari lýsing eignar: Neðri hæð: Anddyri: Ljósar flísar. Hol: Ljósar flísar, geymslurými undir stiga. Forstofuherbergi: Pergó parket á gólfi. Hjónaherbergi: Mjög rúmgott, parket á gólfi, var áður tvö herbergi samkvæmt teikningu og auðvelt að breyta aftur. Svefnherbergi: Rúmgott með parket á gólfi, gott skápapláss. Útgengt út á timburverönd í suður. Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, falleg viðarinnrétting með tvöfaldri handlaug, mjög rúmgóð sturta, baðkar, ofn og upphengt salerni. Flísalagður stigi milli hæða. Efri hæð: Svefnherbergi: Nýtt sem sjónvarpsherbergi í dag, parket á gólfi. Stofa/borðstofa: Mjög rúmgóðar, parket á gólfi, útgengt út á suðursvalir. Eldhús: Parket á gólfi, borðkrókur, eldri viðarinnrétting, t.f. uppþvottavél, tveir gluggar. Þvottahús: Innaf eldhúsi, innrétting, vaskur, lakkað gólf. Geymsla/búr: Innaf þvottahúsi, hillur, lakkað gólf. Gestasnyrting: Flísar á gólfi . Ris: Panelklætt með parket á gólfi. Tveir nýlegir þakgluggar. Sjónvarpsstofa: Parket á gólfi, þakgluggi. Svefnherbergi: Rúmgott með parket á gólfi, þakgluggi. Geymsla. Bílskúr: Heitt og kalt vatn, vaskur, ofnar, sjálfvirkur hurðaopnari, ljósleiðarabox. Fyrirhugað fasteignamat 2020 er kr. 69.500.000 samkvæmt Þjóðskrá Íslands Annað: Um er ræða rúmgott og fjölskylduvænt hús á góðum stað. Stutt er í Seljaskóla, leikskóla og aðra þjónustu. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Árið 2015 var húsið málað að utan. Gler og ofnar hefur verið endurnýjað eftir þörfum, í stærri stofuglugganum er búið að skipta um tréverk líka. Nýlega var skipt um þakkant og þakrennur. Baðherbergið niðri endurnýjað 2015. Hiti í planinu heim að húsi. Mjög rúmgott bílastæði. Frekari upplýsingar veitir Bjarni Blöndal í síma 662-6163 eða [netfang varið] . Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði Fletta í fasteignalista


























