Bogahlíð 14, 105 Reykjavík
Fasteignanúmer: 2031305 Merking: 02-02-02 Matssvæði: Hlíðar
Tegund: Íbúð á hæð Flatarmál: 97.8 m² Herbergi: 4 Svefnherbergi: 3 Baðherbergi: 1 Byggingarár: 1958
Stilltu síur vélarinnar til að fá betri verðhugmynd
Samkvæmt nýjustu
sambærilegum
kaupsamningum Engir kaupsamningar fundust í leitinniSamkvæmt nýjustu
sambærilegum
eignum á sölu Engar sölur fundust í leitinniFasteignamat Ríkisins
74.250.000 kr
| 759.202 kr./m²
Áætlað Fasteignamat Ríkisins
74.350.000 kr
74250
| 760.225 kr./m²
Dagsetning Kaupsamnings
2019-10-08
Kaupverð
48.500.000 kr.
Fermetraverð
495.910 kr./m²
Raun-Kaupverð
67.932.900 kr.
Raun-Fermetraverð
694.610 kr./m²
Dagsetning Kaupsamnings
2017-01-19
Kaupverð
40.000.000 kr.
Fermetraverð
408.998 kr./m²
Raun-Kaupverð
60.609.400 kr.
Raun-Fermetraverð
619.728 kr./m²
6 | 5/15/2026 |
Ásett verð:
78.500.000 kr - 802.658 kr./m²
Eignamiðlun kynnir: Frábær 4-5 herbergja íbúð með suðvestursvalir á þessum vinsæla og eftirsótta stað í hlíðunum. Fjórða svefnherbergið í kjallaranum er heppilegt fyrir stálpaðan ungling eða sem útleigumöguleiki. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815 , [netfang varið] *** Sækja söluyfirlit *** Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 202 við Bogahlíð 14 105 Reykjavík, F2031305. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 97,8 fm. Þar af er íbúðarrými skráð 82,4 fm. Sérgeymsla í kjallara er skráð 15,4 fm. Sameiginleg salernisaðstaða og sturta eru í kjallaranum. Íbúðin skiptist í anddyri / gang, eldhús og stofu sameiginlegu rými, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla sem tilheyrir íbúðinni er í kjallara hússins geymslan er 15,4 fm, er með glugga og nýtist vel sem fjórða svefnherbergið eða útleiguherbergi. Anddyri er með fataskáp. Harðparket á gólfi. Eldhús er með snyrtilegri hvítri innréttingu. Harðparket á gólfi. Eldhús var fært og endurnýjað árið 2022. Stofa er í sameiginlegu rými með eldhúsi. Bjart og fallegt rými sem hleypir inn mikilli dagsbirtu. Útgengi á skjólgóðar suðvestur svalir. Harðparket á gólfi. Svefnherbergi 1 er rúmgott (12,7 fm) með góðu skápaplássi. Harðparket á gólfi. Svefnherbergi 2 er rúmgott (10,4 fm) með opnum skápum. Harðparket á gólfi. Svefnherbergi 3 er rúmgott (11,8 fm) með skápum. Harðparket á gólfi (annað parket en á öðrum rýmum). Baðherbergi er með snyrtilegri grárri innréttingu, steinborðplötu og efri speglaskáp. Upphengt salerni. Walk-in sturta. Flísar á gólfi. Baðherbergi var endurnýjað af Baðlínunni árið 2022. Sérgeymsla (15,4 fm) er í kjallara hússins. Stórt rými með glugga sem getur nýst sem fjórða svefnherbergi íbúðar eða útleiguherbergi. Tveir geymsluskápar fylgja íbúðinni. Sameiginleg dekkjageymsla er í kjallara hússins. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara hússins. Möguleiki er á að tengja þvottavél innan íbúðar. Hjóla- og vagnageymsla í sameign er í kjallara hússins. Garður , útgengt er í sameiginlegan garð úr kjallara hússins. Bílastæði , sérmerkt bílastæði sem tilheyrir íbúðinni á plani, uppsett hleðslustöð. Að auki er lagt við götuna. Íbúðin hefur verið endurnýjuð töluvert að innan á síðastliðnum árum. Eldhús var fært árið 2022 og er nú í sameiginlegu rými með stofu. Baðherbergi var algjörlega endurnýjað á sama tíma. Nýtt harðparket lagt á alla íbúðina nema eitt herbergi í desember 2024. Öll helsta verslun og þjónusta í göngufæri í Kringlunni, skólar á öllum stigum, útivist í Öskjuhlíð og Nauthólsvík og stutt í miðbæinn. Húsið er byggt 1958. Kostnaður kaupanda af kaupum: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati. 2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar. 3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali. 4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar. 5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í. *** Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum. Heimasíða Eignamiðlunar Eignamiðlun á Facebook















