Granaskjól 26, 107 Reykjavík

Fasteignanúmer: 2024466 Merking: 01-02-01 Matssvæði: Tjarnir og Grandi
Tegund: Íbúð á hæð Flatarmál: 153.9 m² Herbergi: 5 Svefnherbergi: 4 Baðherbergi: 1 Byggingarár: 1960
Ásett verð eignar: Eign ekki til sölu
Stilltu síur vélarinnar til að fá betri verðhugmynd
Samkvæmt nýjustu kaupsamningum Engir kaupsamningar fundust í leitinni
Samkvæmt nýjustu eignum á sölu Engar sölur fundust í leitinni

Fasteignamat Ríkisins
110.650.000 kr
|
718.973 kr./m²
Áætlað Fasteignamat Ríkisins
113.150.000 kr 66150
|
735.218 kr./m²

Dagsetning Kaupsamnings

2020-07-01

Kaupverð

75.900.000 kr.

Fermetraverð

493.177 kr./m²

Raun-Kaupverð

103.955.800 kr.

Raun-Fermetraverð

675.476 kr./m²


1 | 5/15/2020 |
Ásett verð: 74.900.000 kr - 486.680 kr./m²
Granaskjól 26 – mynd 1
Granaskjól 26 – mynd 2
Granaskjól 26 – mynd 3
Granaskjól 26 – mynd 4
Granaskjól 26 – mynd 5
Granaskjól 26 – mynd 6
Granaskjól 26 – mynd 7
Granaskjól 26 – mynd 8
Granaskjól 26 – mynd 9
Granaskjól 26 – mynd 10
Granaskjól 26 – mynd 11
Granaskjól 26 – mynd 12
Granaskjól 26 – mynd 13
Granaskjól 26 – mynd 14
Granaskjól 26 – mynd 15
Granaskjól 26 – mynd 16
Granaskjól 26 – mynd 17
Granaskjól 26 – mynd 18
Granaskjól 26 – mynd 19
Granaskjól 26 – mynd 20
Granaskjól 26 – mynd 21
HÚSASKJÓL KYNNIR: ÞESSI VAR FLJÓT AÐ FARA OG SELDIST Á EINU OPNU HÚSI. GRANASKJÓL 26 ER SELD OG ER Í FJÁRMÖGNUNARFERLI. Mjög mikill áhugi var á eigninni. Erum með 69 kaupendur sem eru að leita að hæð eða litlu sérbýli í 107 og 170. Mjög margir sem eru að stækka við sig og eru tilbúnir í að skipta á minni eign. Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar Hugguleg hæð í Vesturbænum þar mannlífið iðar lífi. Íbúðin er á efstu hæð með sérinngangi og útsýni. Henni fylgir bæði byggingarréttur á bílskúr sem og réttur til að byggja ofan á húsið. Íbúðin er skráð 148.9 fm og geymslan 3,4 fm, heildarstærð eignar 153,9 fm. Smelltu hér til að skoða eignamyndband Smelltu hér til að skoða teikningar Við Granaskjól 26, í 107 Reykjavík þessi huggulega hæð á efstu hæð. Þetta er draumastaðsetning þeirra sem vilja vera í Vesturbænum og njóta alls þess sem umhverfið hefur uppá að bjóða. Hæðin er vel staðsett með tilliti til allra þjónustu og útivistar. Granaskjól tilheyrir einu af eftirsóttasta hverfi borgarinnar, sem er gamalgróið hverfi, fjölskylduvænt með sterka ímynd. Fyrir þá sem vilja njóta þess að vera í nánd við náttúruna og um leið njóta borgarlífsins þá er þetta rétta eignin. Staðsetningin er draumur fyrir marga og hér er einstakt tækifæri til að gera eignina að sínu. Staðsetning er algjörlega einstök. Íbúðin er innst í botnlanga sem er innaf botnlanga. Grandaskóli, 2 leikskólar, Kr völlurinn eru í nokkurra mínútna göngufæri. Örstutt á Ægissíðuna, Gróttu og Nauthólsvík. Frábær staður fyrir krakka. Vesturbæjarísbúðin, Melabúðin og Vesturbæjarlaugin einnig handan við hornið. Skipulag hæðarinnar er gott og gefur kost á mörgum möguleikum á nýtingu rýmisins. Gengið er inn um sérinngang, upp teppalagðan stiga uppá góðan pall sem nýtist vel sem forstofa. Fallegt handrið með skrauti í bóhem stíl prýðir stigann. Stigapallurinn er bjartur með flottum stórum glugga og veglegri tvöfaldri millihurð inn á hæðina sem settur skemmtilegan svip á forstofuna. Úr forstofunni er gengið inn á rúmgóðan gang áfram inn í stofu og borðstofu. Í kverkunum í lofti gangsins og í stofunum eru fallegar rósettur sem gefa rýminu meiri dýpt og fagurleika. Parket á gólfi. Á ganginum eru innbyggðar hillur sem koma vel út og notagildi gangsins verður fjölbreytara fyrir vikið. Stofurnar eru stórar og bjartar með góðum gluggum þar sem útsýnið er fallegt. Upphaflegt skipulag gerir ráð fyrir eldhúsi í innri stofunni. Hvíti liturinn er í forgrunni og gluggarnir fá að njóta sín með screen gardínum sem kemur vel út. Með rósettunum í kverkunum í loftinu og stóru björtu gluggunum minnir hæðin á franskan arkitekttúr þar sem rómantíkin ræður ríkjum og hægt er að leika sér að skipulaginu með ýmsum útfærslum. Eldhúsið er með klassísku u-laga uppsetningunni með góðri innréttingu með efri og neðri skápum þar sem notagildið er í forgrunni. Góðir gluggar sem gera rýmið bjart og borðkrókur í eldhúsi. Innaf eldhúsi er búr. Á svefnherbergisganginum eru hvítir skápar með rennihurðum. Hæðinni fylgja fjögur svefnherbergi. Hjónaherbergið er rúmgott með upprunalegum og fallegum tekkskápum og parketi á gólfi. Þrjú barnaherbergi, öll með skápum. Tvö eru rúmgóð og það þriðja minna og er nýtt sem skrifstofa í dag. Baðherbergið er með flísaplötum frá Þ. Þorgrímsson í hólf og gólf. Ljós viðarinnrétting er til staðar þar sem hvíti liturinn tónir vel við. Á baðherberginu eru sturtuklefi auk þess sem þar þvottavél og þurrkari til staðar. Hæðinni fylgir jafnframt geymsluloft yfir megninu af hæðinni. Í sameign er sérgeymsla með hillum, sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla. Einnig er sameiginleg geymsla með lögnum fyrir salerni. Hæðinni fylgir einnig bílskúrsréttur og stæðið sem er fjær húsinu. Að sögn eiganda hefur eftirfarandi verið endurnýjað: 2013: skipt um þakrennur 2014: nýtt klóak og drenlagnir 2011: allar raflagnir endurnýjaðar sem og tafla, tölvulagnir lagðar í öll herbergi Einnig var skipt um þakjárn fyrir 15 árum og búið er að endurnýja flesta glugga Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 863-0402 eða í gegnum tölvupóstfangið [netfang varið] Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar Fylgdu okkur á Instagram Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls Ertu í fasteignahugleiðingum erlendis? Húsaskjól er meðlimur í Leading Real Estate Companies of the World Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property. ? Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði Fletta í fasteignalista